ðH geocities.com /Vienna/Opera/9926/fb00-05.htm geocities.com/Vienna/Opera/9926/fb00-05.htm .delayed x ë^ÕJ ÿÿÿÿ ÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÿÈ „˜ ~g OK text/html páƒ9 ~g ÿÿÿÿ b‰.H Thu, 20 Apr 2000 18:27:34 GMT Ð Mozilla/4.5 (compatible; HTTrack 3.0x; Windows 98) en, * ê^ÕJ ~g
6. TBL. 5. ÁRGANGUR |
MAÍ 2000 |
||
|
|||
|
|||
|
|||
FÉLAG ÍSLENDINGA Í AUSTURRÍKI
|
|||
|
|||
üýþÿ |
Dansiballið
Því miður misritaðist dagsetningin á
ballinu í síðasta fréttabréfi. Ballið sem um ræðir er “Frühlingsball der Tanzschule
Dick Roy” og er í Ráðhúsinu laugardagskvöldið 29. apríl. Það byrjar klukkan 21
og stendur til 3. Miðaverð er 360 schillingar og eru þeir sem vilja koma eru
beðnir um að hafa samband við undirritaðan í síma 5968213 eða e-mail osveinsson@hotmail.com strax
eftir þennan lestur.
Dansæfing verður í íþróttasalnum
miðvikudagskvöldið 26. apríl frá klukkan 18. 30 til 21 og þangað eru allir
velkomnir hvort sem þeir ætla á ballið eða ekki.
Með syngjandi sveiflu
Óli Sveins
¶
Ný símaskrá kemur út á næstunni.
Sendið okkur endilega e-mailin ykkar og tilkynningar um ný heimilsföng.
¶
Púðursykur
og fleira góðgæti
Fundist hefur lítil en skemmtileg
matvöruverslun sem selur breskar og amerískar matvörur. Þar má m. a finna
púðursykur, síróp, "seríos", bláan PK og kanil tyggjó.... þessi fína
verslun heitir Bobby´s og er í Schleifmühlgasse 8 í 4. hverfi.
Sími: 586 75 34
E-Mail: Bobbys@chello.at
¶
Björkvöld
Næsta bjór - og skemmtikvöld verður
haldið þann 5. maí á Universitätsbräu í gamla AKH. Byggingin stendur á horni
Alserstrasse og Spitalgasse. Hægt er að komast þangað með sporvögnum númer 43,
44, 33 og 5 svo og U2 að Schottentor og þaðan með vagni númer 43 eða 44 og U6
og vagn 43.
Þeir skemmtilegstu mæta um 8 leytið
og svo hinir aðeins seinna.
¶
Hagkvæm
flugfargjöld
Munið hagkvæm flugfargjöld frá
München til Íslands frá 15. Júni til 31. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur í
síma 9130228.
¶
Ísland í
sjónvarpinu
Djöflaeyjan: 3 SAT, 2. maí, klukkan
22.25
Fernweh - Reisereport. Leben zwischen
Feuer und Eis: BR (bæríska sjónvarpsstöðin), 24. apríl, klukkan 17.05
¶
Mogginn á
Tirolerhof
Vid viljum minna ykkur á að
helgarblöð Moggans og DV liggja á kaffihúsinu Tirolerhof. Okkur langar til að
vita hver áhuginn er og viljum við því biðja ykkur um að skrifa nöfn ykkar og
dagsetningu á blöðin. Kærar þakkir fyrir samvinnuna.
¶
Vor í Prag
Þeir sem vilja koma með í Pragferðina
eru beðnir um að hafa samband.
Fyrirhugað er að fara um miðjan maí
og þá frá föstudegi til sunnudags. Ferðakostnaður með gistingu í tvær nætur
myndi vera ca. 1000 schillingar. Maður er manns gaman - komið með!
E-Mail:
¶
FIA á
Netinu
Þetta blað er eingöngu sent á gamla
mátann. Næsta blað verður einnig sent með rafpósti. Þeir sem vilja eingöngu fá
blaðið sent á þann hátt eru beðnir um að láta Sigrúnu Andrésdóttur vita: sigrun.andresdottir@htn.stjr.is
Heimasíðan okkar er í fæðingu. Þeir
sem vilja ekki að heimilisfang þeirra birtist á Netinu eru beðnir um láta
Gunnhildi vita: 596 8213 eða gunnhildurwien@hotmail.com
¶
Miðvikudagskvöld 26. apríl: Dansæfing 18.30
Laugardagskvöld 29. apríl: Dansiball í Ráðhúsinu
Föstudagskvöld 5. maí: Björkvöld í Universitätsbräu
Copyright (C) 2000 by
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Vienna, Austria.